60.448 greinar á íslensku.
Al Capone
Al Capone var bandarískur glæpaforingi sem var virkur á bannárunum í Chicago á þriðja áratugnum.
Capone var af ítölskum uppruna og leiddi glæpasamtök í Chicago í Bandaríkjunum á áfengisbannsárunum, 3. áratug síðustu aldar. Hann fæddist í New York, foreldrar hans voru ítalskir innflytjendur og hann gekk í skóla fram til fermingaraldurs. Hann fór þá að stunda smáglæpi í New York fram til tvítugsaldurs þegar hann fluttist til Chicago til þess að nýta sér áfengisbannið, að græða á sölu og smygli ólöglegs áfengis.
Hann reis fljótt hátt í völdum í glæpasamtökum Chicago og um 1925 var hann leiðtogi glæpasamtaka þar í borg. Ásamt áfengisglæpunum mútaði hann yfirvöldum og stóð í blóðugum stríðum við óvinaglæpasamtök ásamt vændi og fjárhættuspilum. Einn alræmdasti glæpur hans mun vera Valentínusardagsmorðin árið 1929 þegar menn hans drápu sjö af óvinaklíkumeðlimum hans. Hann var dæmdur fyrir skattsvik árið 1931 og eyddi átta árum í fangelsi, meðal annars í Alcatraz en var sleppt 1939 af heilsufarsástæðum, en hann var með alvarlegt tilfelli af sárasótt. Hann dó árið 1947 í villu sinni í Flórída.
Vissir þú...

- … að um helmingur allra íbúa Paragvæ lést í Paragvæstríðinu 1864–1870?
- … að barnastjarnan Shirley Temple varð á fullorðinsárum sínum sendiherra Bandaríkjanna í Gana og Tékkóslóvakíu?
- … að samkvæmt hefðum ástralskra frumbyggja áttu eingöngu karlmenn að leika á hljóðfærið didgeridoo (sjá mynd)?
- … að metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoninu var árið 2014, þegar 15.552 þáttakendur voru skráðir?
- … að titill bókarinnar Lord of the Flies er vísun í viðurnefni djöfulsins Belsebúbs?
Fréttir

- 29. ágúst: Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið fór fram. Aðildarviðræðum var hafnað.
- 28. ágúst: Hákon 8. (sjá mynd) tekur við norsku krúnunni eftir andlát föður síns, Haraldar 5. Noregskonungs.
- 26. ágúst: Skyndilegt jökulhrun á mörkum Nepals og Kína verður meira en í 1.300 manns að bana í flóðum sem fylgdu.
- 20. ágúst: Lýðræðislega fylkjasambandið í Norður-Sýrlandi er að fullu innlimað af ríkisstjórn Sýrlands.
Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið
Nýleg andlát: Gloria Steinem (2. september) • Sigríður Þorvaldsdóttir (31. ágúst) • Haraldur 5. (28. ágúst) • Ratko Mladić (27. ágúst) • Eyvindur P. Eiríksson (26. ágúst) • Dolly Parton (25. ágúst) • Steinn Ármann Magnússon (21. ágúst)
12. september
- 2011 - Um hundrað manns létust þegar olíuleiðsla sprakk í Naíróbí.
- 2012 - Jarðneskar leifar Ríkharðs 3. fundust í Leicester á Englandi.
- 2017 - Björt framtíð sleit stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn eftir að upp komst að faðir Bjarna Benediktssonar hefði verið einn þeirra sem mæltu með því að kynferðisbrotamaður hlyti uppreist æru, en dómsmálaráðherra aðeins upplýst forsætisráðherra sjálfan um það.
- 2018 - Fellibylurinn Flórens gekk á land og olli miklu tjóni í Norður- og Suður-Karólínu.
- 2022 - Átök hófust milli Aserbaísjan og Armeníu á landamærum ríkjanna.
- 2023 - Yfir 11.000 létust í flóðum í austur-Líbíu við borgina Derna.
- 2024 - Fyrsta keypta geimgangan var farin þegar frumkvöðullinn og milljarðamæringurinn Jared Isaacman fór út fyrir geimfar.
Systurverkefni
|
|