Baal Sebúb eða Belsebúb (orðrétt: Flugnahöfðinginn) er nafn á djöfli sem stundum er talinn vera Satan. Nafnið er komið frá filistískum guði sem var áður tilbeðinn í Ekron og var síðar tekið upp í abrahamískum trúarbrögðum sem nafn á djöfli. Nafnið tengist kananíska guðinum Baal.

Myndlýsing af Belsebúb úr djöflafræðibókinni Dictionnaire Infernal (1818).

Í kristinni djöflafræði er Belsebúb einn af sjö prinsum vítis sem standa fyrir dauðasyndirnar sjö. Meðal þeirra stendur Belsebúb fyrir ofát og öfund. Í djöflafræðibókinni Dictionnaire Infernal er Belsebúb lýst sem fljúgandi veru sem kölluð er „höfðingi flugnanna“. Titill bókarinnar Höfuðpaursins (e. Lord of the Flies) eftir William Golding vísar til þessa viðurnefnis á Belsebúb vegna tengsla hans við helvíti og efni bókarinnar.

  Þessi trúarbragðagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.