ýmsar gerðir af didgeridoo hljóðfærinu
Ýmsar gerðir af didgeridoo, A - C eru hefðbundin og gerð af innfæddum. D var myndskreytt af innfæddum.
Hvernig didgeridoo hljómar

Didgeridoo (stundum kallaður ljóðalurkur) er blásturshljóðfæri sem var þróað af frumbyggjum Ástralíu og eitt elsta hljóðfæri heimsins. Það er gert úr greinum eða bol tröllatrés sem hefur verið holað að innan af termítum og þess vegna er lögun þessara hljóðfæra mjög náttúruleg og fjölbreitt.[1]

Þetta var talið hátíðarhljóðfæri og hefðbundið var það eingöngu spilað af karlmönnum, og var sú hefð svo sterk áður fyrr á meðal frumbyggja að konur máttu varla snerta hljóðfærið.[2]

Tilvísanir

breyta
  1. „Australia: Make an Aboriginal Didgeridoo“. Lam Meuseum of Anthropology. 25. september 2020. Sótt 26. ágúst 2026.
  2. „Learn about the didgeridoo“. Australian Choice. Sótt 27. ágúst 2026.