61.002 greinar á íslensku.
Lukku-Láki
Lukku-Láki er heiti á vinsælum belgískum teiknimyndasögum sem segja frá ævintýrum Lukku-Láka, kúreka sem er fljótari en skugginn að skjóta, í villta vestrinu. Persónan er sköpunarverk belgíska teiknarans Morris (Maurice de Bevere) og birtist fyrsta ævintýrið í teiknimyndablaðinu Sval (franska: Spirou) í október 1946. Frá og með árinu 1955 voru handrit að sögunum um Lukku-Láka samin af franska myndasöguhöfundinum René Goscinny og í samstarfi þeirra Morris og Goscinny náðu bækurnar miklum vinsældum. Eru þær nú meðal mest seldu teiknimyndasagna Evrópu og hafa verið þýddar á hartnær 30 tungumál, þar á meðal ensku, arabísku, þýsku, dönsku, grísku, hebresku, tyrknensku og ítölsku. Á árunum 1977 til 1983 komu fjölmargar Lukku-Láka bækur út á íslensku á vegum Fjölvaútgáfunnar. Íslensk útgáfa Lukku-Láka hófst á ný árið 2016 á vegum Frosks útgáfu og komu út fimm bækur á árunum 2016-2020.
Ekki er að finna neinar vísbendingar í sköpunarsögu Lukku-Láka, sem til dæmis má lesa um í Allt um Lukku-Láka, um að hann hafi verið til eða eigi sér ákveðna fyrirmynd. Hins vegar eiga fjölmargar aðrar persónur í bókunum um Lukku-Láka sér beinar fyrirmyndir, annað hvort teknar beint úr sögu villta vestursins eða þekktar ímyndir úr samtímasögu vesturlanda þegar bækurnar voru gerðar.
Vissir þú...

- … að Todor Zhívkov, leiðtogi Búlgaríu, varð árið 1970 fyrsti leiðtogi austantjaldsríkis sem kom í opinbera heimsókn til Íslands?
- … að Emma Thompson (sjá mynd) er eina manneskjan sem hefur unnið Óskarsverðlaun bæði sem leikari og sem handritshöfundur?
- … að yfirhjúkrunarkonan Jóhanna Knudsen var árið 1941 ráðin af stjórnvöldum til að rannsaka konur og stúlkur sem höfðu haft náin kynni við hermenn í ástandinu?
- … að Gettysborgarávarpið, ein frægasta ræða í sögu Bandaríkjanna, tók aðeins þrjár mínútur í flutningi en var upphaflega flutt beint á eftir vígsluræðu sem tók um tvær klukkustundir?
- … að Fæðing þjóðar, kvikmynd sem sýnir haturssamtökin Ku Klux Klan í hetjulegu ljósi, var fyrsta kvikmyndin sem var sýnd í Hvíta húsinu í Washington?
Fréttir

- 16. maí: Sveitarstjórnarkosningar fara fram á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur flest sæti í borgarstjórn Reykjavíkur.
- 16. maí: Búlgaría vinnur Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2026 með laginu „Bangaranga“ eftir Dara (sjá mynd).
- 14. maí: Evika Siliņa, forsætisráðherra Lettlands, segir af sér vegna viðbragða stjórnarinnar við drónahernaði Úkraínumanna.
- 1. maí: Sameinuðu arabísku furstadæmin yfirgefa Samtök olíuútflutningslanda.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Ted Turner (6. maí)
25. maí
- 2011 - Geimferðastofnun Bandaríkjanna hætti að reyna að ná sambandi við Marsbílinn Spirit og lýsti því yfir að verkefninu væri lokið.
- 2013 - Hallsteinsgarður í Grafarvogi var vígður.
- 2013 - Sikileyski presturinn Pino Puglisi sem mafían myrti 1993 var lýstur sæll af kaþólsku kirkjunni.
- 2018 - Almenna persónuverndarreglugerðin tók gildi á Evrópska efnahagssvæðinu.
- 2020 – Bandarískur blökkumaður að nafni George Floyd var kæfður til dauða í haldi bandarískra lögreglumanna í Minneapolis. Dauði hans hratt af stað öldu mótmæla gegn kynþáttaofbeldi lögreglu.
- 2023 - Norska stórþingið samþykkti „laxaskattinn“, landsrentu fyrir nýtingu hafsvæða upp á 25%.
- 2025 - Rússland gerði loftárásir á þrjátíu borgir í Úkraínu.
Systurverkefni
|
|