Konungur ljónanna
Konungur ljónanna (enska: The Lion King) er bandarísk teiknimynd framleidd af Walt Disney Pictures. Myndin var frumsýnd þann 15. júní 1994.
| Konungur ljónanna | |
|---|---|
| The Lion King | |
| Leikstjóri | Roger Allers Rob Minkoff |
| Handritshöfundur | Irene Mecchi Jonathan Roberts |
| Framleiðandi | Don Hahn |
| Leikarar | Jonathan Taylor Thomas Matthew Broderick James Earl Jones Jeremy Irons Rowan Atkinson Moira Kelly Nathan Lane Ernie Sabella Robert Guillaume Niketa Calame Whoopi Goldberg Cheech Marin Jim Cummings Madge Sinclair |
| Klipping | Ivan Bilancio |
| Tónlist | Hans Zimmer |
| Dreifiaðili | Buena Vista Pictures |
| Frumsýning | 15. júní 1994 |
| Lengd | 88 mínútur |
| Land | |
| Ráðstöfunarfé | 45 milljónir USD |
| Heildartekjur | 987,5 milljónir USD |
| Framhald | Konungur ljónanna 2: Stolt Simba |
Kvikmyndin var þrítugasta og önnur kvikmynd Disney-teiknimyndaversins í fullri lengd. Leikstjórar myndarinnar voru þeir Roger Allers og Rob Minkoff. Framleiðandinn er Don Hahn. Handritshöfundar voru Irene Mecchi, Jonathan Roberts og Linda Woolverton. Tónlistin í myndinni er eftir Tim Rice og Elton John. Árið 1998 og 2004 voru gerðar framhaldsmyndir, Konungur ljónanna 2 og Konungur ljónanna 3, sem var aðeins dreift á mynddiski.
Söguþráður
breytaSagan hefst einhvers staðar í Afríku sunnan Sahara, þar sem hópur ljóna ræður yfir ríki dýranna við stað sem nefnist Ljósuklettar. Öll dýr ríkisins safnast saman í kringum Ljósukletta til að hylla Simba, nýfæddan son Múfasa konungs og Sarabíu drottningar. Mandríllinn Rafiki, ráðgjafi konungsins, heldur Simba yfir fjöldanum til hyllingar. Á meðan leggur yngri bróðir Múfasa, Skari, á ráðin um að losna við bæði Múfasa og Simba til þess að geta sjálfur orðið konungur.
Þegar Simbi er orðinn ungur ljónsungi sýnir Múfasa honum Ljósukletta en bannar honum að fara út fyrir landamæri ríkisins. Múfasa kennir Simba skyldur konungsembættisins og um „hringrás lífsins“ sem tengir allar lífverur saman.
Skari ginnir Simba til að hætta sér út í fílakirkjugarð fyrir utan landamæri Ljósukletta. Þar ráðast þrjár hýenur að nafni Sensa, Bansí og Eddi á Simba og bestu vinkonu hans, Nölu. Hirðstjóri Múfasa, horninn Sasú, gerir Múfasa viðvart og Múfasa kemur síðan askvaðandi og bjargar ljónsungunum frá hýenunum. Múfasa segir Simba að hann sé vonsvikinn yfir því að hann hafi óhlýðnast og stofnað lífum þeirra Nölu í hættu en fyrirgefur honum þó. Hann útskýrir síðan fyrir Simba að konungar fortíðarinnar vaki yfir þeim á næturhimninum og að hann muni sjálfur vaka yfir Simba einn daginn. Skari vitjar hýenanna og telur þær á að hjálpa honum að drepa Múfasa og Simba í skiptum fyrir aðgengi að veiðilendum Ljósukletta.
Skari tælir Simba með sér inn í gil. Hann gefur hýenunum merki um að hræða stóra hjörð af gnýjum til þess að þeir æði á flótta inn í gilið og traðki Simba undir fótum sér. Hann gerir Múfasa viðvart, sem bjargar Simba og reynir að klifra upp úr gilinu en Skari svíkur hann með því að kasta honum niður í troðninginn, þar sem hann deyr. Skari segir Simba að dauði Múfasa sé hans sök og segir honum að flýja burt frá Ljósuklettum og láta aldrei sjá sig framar. Hann skipar hýenunum svo að drepa Simba en Simbi kemst undan. Skari, sem veit ekki að Simbi er á lífi, segir ljónahópnum að Múfasa og Simbi hafi báðir dáið í troðningnum. Hann gerist sjálfur nýr konungur og hleypir hýenunum inn í Ljósukletta.
Simbi líður út af í miðri eyðimörkinni en er bjargað þegar tvö útskúfuð dýr, jarðköttur og vörtusvín að nafni Tímon og Púmba, finna hann. Simbi vex úr grasi með tvíeykinu í vin þeirra í eyðimörkinni og lifir áhyggjulausu lífi samkvæmt kjörorðum þeirra, „hakúna matata“ („engar áhyggjur“ á svahílí). Mörgum árum síðar bjargar Simbi, sem þá er fullvaxinn, Tímon og Púmba frá hungraðri ljónynju sem reynist vera Nala. Simbi og Nala verða ástfangin og hún hvetur hann til að snúa heim til Ljósukletta, sem þjást undir stjórn Skara vegna þurrka og ofveiði. Simbi, sem enn er þjakaður af sektarkennd vegna dauða Múfasa, neitar að snúa heim og strunsar burt. Hann mætir Rafiki, sem segir Simba að andi Múfasa lifi enn í honum. Andi Múfasa birtist fyrir Simba á næturhimninum og segir honum að hann verði að sinna skyldu sinni sem réttborinn konungur. Eftir að Rafiki segir Simba að hægt sé að læra af hinu liðna frekar en að flýja frá því ákveður Simbi að snúa aftur til Ljósukletta.
Simbi læðist fram hjá hýenunum við Ljósukletta með hjálp vina sinna og gengur fram fyrir Skara, sem smánar Simba frammi fyrir hópnum vegna meintrar sakar hans á dauða Múfasa. Skari játar síðan í laumi fyrir Simba að hann hafi myrt Múfasa. Simbi reiðist og neyðir Skara til að segja ljónahópnum sannleikann. Bardagi brýst út milli Simba og vina hans annars vegar og hýenanna hins vegar. Skari reynir að komast undan en Simbi króar hann af á sillu efst á Ljósuklettum. Skari biðst vægðar og reynir að blekkja Simba með því að kenna hýenunum um allt saman. Simbi þyrmir lífi Skara en skipar honum að fara burt frá Ljósuklettum og snúa aldrei aftur. Skari neitar og ræðst á Simba. Eftir stutt átök kastar Simbi Skara af sillunni. Skari lifir fallið af en hýenurnar, sem heyrðu hann svíkja þær, ráðast á hann og rífa hann í sig.
Þegar Skari og hýenurnar eru á bak og burt tekur Simbi við konungskrúnunni með Nölu sem drottningu sína. Í lok myndarinnar safnast dýrin saman við Ljósukletta á ný til að hylla nýfæddan ljónsunga Simba og Nölu.
Íslensk talsetning
breyta| Hlutverk | Leikari[1] |
|---|---|
| Ungur Simbi | Þorvaldur Davíð Kristjánsson |
| Fullorðinn Simbi | Felix Bergsson |
| Ung Nala | Álfrún Örnólfsdóttir |
| Fullorðin Nala | Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir |
| Skari | Jóhann Sigurðarson |
| Múfasa | Pétur Einarsson |
| Sarabía | Helga Jónsdóttir |
| Sasú | Sigurður Sigurjónsson |
| Tímon | Þórhallur Sigurðsson |
| Púmba | Karl Ágúst Úlfsson |
| Rafiki | Karl Ágúst Úlfsson |
| Sensa | Edda Heiðrún Backman |
| Bansí | Eggert Þorleifsson |
| Eddi | Jim Cummings |
Lög í myndinni
breyta| Titill | Söngvari |
|---|---|
| „Lífsferillinn“ | Berglind Björk Jónasdóttir |
| „Ég ætla að verða kóngur klár“ | Þorvaldur Davíð Kristjánsson Álfrún Örnólfsdóttir Sigurður Sigurjónsson |
| „Viðbúin, öll“ | Jóhann Sigurðarson Edda Heiðrún Backman Eggert Þorleifsson |
| „Hakúna matata“ | Þorvaldur Davíð Kristjánsson Felix Bergsson Þórhallur Sigurðsson Karl Ágúst Úlfsson |
| „Ástin opnar augun skær“ | Guðrún Gunnarsdóttir Felix Bergsson Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Þórhallur Sigurðsson Karl Ágúst Úlfsson |
Tæknilega
breyta| Starf | Nafn |
|---|---|
| Leikstjóri | Randver Þorláksson |
| Handritshöfundur og þýðandi | Ólafur Haukur Símonarson |
| Tónlistarstjóri | Vilhjálmur Guðjónsson |
| Textahöfundar | Ólafur Haukur Símonarson |
| Framkvæmdastjórn | Kirsten Saabye |
| Upptökur | Stúdío Eitt |
Tilvísanir
breyta- ↑ „Konungur ljónanna / The Lion King Icelandic Voice Cast“. WILLDUBGURU (enska). Sótt 29 apríl 2019.