Kandahar
Kandahar er næststærsta borg Afganistans og er í suðurhluta landsins. Borgin er höfuðborg Kandaharhéraðs. Íbúar eru um 732.000 (2025).[1] Borgin er ein mikilvægasta borg pastúmælandi fólks. Hún er í rúmlega 1000 metra hæð yfir sjávarmáli.[2]

Alexander mikli lagði grunninn að eldri hluta Kandahar á 4. öld fyrir okkar tímatal og nefndi borgina Alexandríu í Arakósíu. Borgin hefur verið bitbein ýmissa ríkja í gegnum söguna. Hún er staðsett á hernaðarlega mikilvægu svæði þar sem Suður-, Mið- og Norður-Asía mætast. Talíbanar réðust á borgina sumarið 2021 og hafa þar nú yfirráð. Kandahar er upphafsstaður Talíbana og eiginleg höfuðborg, þótt Kabúl sé áfram formlega höfuðborg landsins eftir valdatöku þeirra.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Estimated Population of Afghanistan 2025-26“ (PDF). National Statistics and Information Authority. september 2025. bls. 94. Sótt 21 janúar 2026.
- ↑ „State of Afghan Cities report 2015 (Volume-II)“. UN-Habitat. bls. 54. Sótt 22 október 2015.
- ↑ Ikramullah Ikram; Abubakar Siddique (18 apríl 2023). „Southern Afghan City Becomes De Facto Capital As Taliban Chief Tightens Grip On Power“. Radio Free Europe/Radio Liberty. Afrit af uppruna á 11 maí 2023. Sótt 11 maí 2023.