Francesco Cossiga
Francesco Cossiga (26. júlí 1928 í Sassari á Sardiníu - 17. ágúst 2010 í Róm) var ítalskur stjórnmálamaður sem hefur verið bæði forsætisráðherra Ítalíu og forseti Ítalíu. Hann kenndi lögfræði við háskólann í Sassari.
| Francesco Cossiga | |
|---|---|
| Forseti Ítalíu | |
| Í embætti 3. júlí 1985 – 28. apríl 1992 | |
| Forsætisráðherra | Bettino Craxi Amintore Fanfani Giovanni Goria Ciriaco De Mita Giulio Andreotti |
| Forveri | Sandro Pertini |
| Eftirmaður | Oscar Luigi Scalfaro |
| Forsætisráðherra Ítalíu | |
| Í embætti 5. ágúst 1979 – 18. október 1980 | |
| Forseti | Sandro Pertini |
| Forveri | Giulio Andreotti |
| Eftirmaður | Arnaldo Forlani |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 26. júlí 1928 Sassari, Ítalíu |
| Látinn | 17. ágúst 2010 (82 ára) Róm, Ítalíu |
| Þjóðerni | Ítalskur |
| Stjórnmálaflokkur | Kristilegi demókrataflokkurinn (1945–1992) |
| Maki | Giuseppa Sigurani (g. 1960; sk. 1998) |
| Börn | 2 |
| Háskóli | Háskólinn í Sassari |
| Undirskrift | |
Hann gekk sautján ára í kristilega demókrataflokkinn en hóf feril sinn sem kennari í lögfræði í Sassari. Stjórnmálaferill hans hófst ekki fyrr en við lok 6. áratugarins og hann var kosinn á þing 1958 og varð síðan aðstoðarvarnarmálaráðherra 1966. Hann varð innanríkisráðherra 1976 en sagði af sér embætti í kjölfarið á ráninu á Aldo Moro árið 1978.
1979 varð hann forsætisráðherra í skammlífri ríkisstjórn og 1983 var hann kosinn forseti öldungadeildarinnar.
1985 var hann kosinn sjöundi forseti Ítalíu af sameinuðu þingi, sá fyrsti sem náð hefur kjöri í fyrstu umferð, með miklum mun (752 af 977 atkvæðum). Sem forseti varð hann frægur fyrir athugasemdir sínar um stjórnmálakerfið á Ítalíu og það að fylgja stjórnarskránni út í ystu æsar. Hann sagði af sér embætti 28. apríl 1992, tveimur mánuðum áður en kjörtímabili hans lauk.
| Fyrirrennari: Giulio Andreotti |
|
Eftirmaður: Arnaldo Forlani | |||
| Fyrirrennari: Sandro Pertini |
|
Eftirmaður: Oscar Luigi Scalfaro | |||