Donald Arvid Nelson (15. maí 1940 – 9. ágúst 2026) var bandarískur körfuknattleiksþjálfari og leikmaður. Hann lék körfubolta með Háskólanum í Iowa áður en hann gerðist atvinnumaður í NBA-deildinni. Í NBA lék hann fjórtán tímabil, lengst af með Boston Celtics en einnig með Chicago Zephyrs og Los Angeles Lakers. Með Celtics vann hann fimm meistaratitla á árunum 1966 til 1976 og eftir að ferli hans lauk var númer hans hengt upp í rjáfur hjá liðinu.[1][2]

Don Nelson
Nelson árið 2012
Persónulegar upplýsingar
Fæðingardagur15. maí 1940(1940-05-15)
Muskegon, Michigan, Bandaríkin
Dánardagur9. ágúst 2026 (86 ára)
Frisco, Texas, Bandaríkin
Hæð198 cm (6 ft 6 in)
Þyngd95 kg (209 lb)
Körfuboltaferill
HáskólaliðIowa (1959–1962)
Nýliðaval NBA1962: 3. umferð, 17. valréttur
Valin af Chicago Zephyrs
Ár í mfl.1962–1976
LeikstaðaFramherji
Þjálfaraferill1976–2010
Liðsferill
Sem leikmaður:
1962–1963Chicago Zephyrs
1963–1965Los Angeles Lakers
1965–1976Boston Celtics
Sem þjálfari:
1976Milwaukee Bucks (aðstoðarþj.)
1976–1988Milwaukee Bucks
1988–1995Golden State Warriors
1995–1996New York Knicks
1997–2005Dallas Mavericks
2006–2010Golden State Warriors
Heildar tölfræði í sem leikmaður
Stig10.898 (10,3)
Fráköst5.192 (4,9)
Stoðsendingar1.526 (1,4)
Tölfræði á NBA.com Breyta á Wikidata
Tölfræði á Basketball Reference Breyta á Wikidata
Þjálfaraferill
NBA1335–1063 (.557)
Naismith heiðurshöllin sem jálfari

Eftir að leikferlinum lauk snéri Nelson sér að þjálfun. Hann þjálfaði í NBA í 34 ár og var þrívegis valinn besti þjálfari deildarinnar. Hann er næst flesta sigra í deildarkeppninni með 1.335 sigra en einungis Gregg Popovich er ofar. Nelson stýrði bandaríska karlalandsliðinu á HM Karla árið 1994 og stýrði því til gullverðlauna.[1]

Titlar

breyta

Sem leikmaður

breyta
  • NBA (5): 1966, 1968, 1969, 1974, 1976

Sem þjálfari

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. 1 2 „Don Nelson | Coach, NBA, Death & Facts | Britannica“. www.britannica.com (enska). 9 ágúst 2026. Sótt 10 ágúst 2026.
  2. Valur Páll Eiríksson (8. september 2026). „Don Nelson látinn“. Vísir.is. Sótt 11 ágúst 2026.