Bris
Briskirtill eða bris er líffæri í hryggdýrum, sem framleiðir hormón og brissafa. Brisið telst því bæði vera út- og innkirtill og er hluti af meltingarkerfinu. Það myndar brissafa sem hefur að geyma m.a. meltingarensím sem brjóta niður mjölva, fitu og prótein. Sem innkirtill seytir brisið glúkagoni og insúlíni í sykurstjórnun. [1] Í manni er brisið um 15-25 cm á lengd og vegur um 65-75 g.
Tengill
breytaWikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Bris.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Brisi.
Tilvísanir
breyta- ↑ Hvaða hlutverki gegnir brisið í líkamanum? Vísindavefurinn