Apía
höfuðborg Samóa
Apía er höfuðborg og stærsta borg Samóa á miðri norðurströnd eyjarinnar Upolu. Apía er eina eiginlega borgin á Samóaeyjum. Hún er í héraðinu Tuamasaga. Íbúar eru tæplega um 35 þúsund (2021). Borgin er hafnarborg og helsta útflutningshöfn eyjanna. Þaðan ganga ferjur til Tókelá og Bandarísku Samóa.
Apía | |
|---|---|
| Hnit: 13°50′S 171°50′V / 13.833°S 171.833°V | |
| Land | |
| Mannfjöldi (2021) | |
| • Samtals | 35.974 |
| Tímabelti | UTC+13:00 |
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Apía.