Kalsín
Frumefni með efnatáknið Ca og sætistöluna 20
(Endurbeint frá Kalk)
Kalsín eða kalsíum (úr latínu calcis, „kalk“) er frumefni með efnatáknið Ca og sætistöluna 20 í lotukerfinu. Kalsín er mjúkur grár jarðalkalímálmur sem er notaður sem afoxari við útdrátt á þóríni, sirkoni og úrani. Þetta er einnig fimmta algengasta frumefnið í skorpu jarðar. Það er líka fimmta algengasta uppleysta jónin í sjó á eftir natríni, klóríði, magnesíni og súlfati.
| Magnesín | |||||||||||||||||||||||||
| Kalín | Kalsín | Skandín | |||||||||||||||||||||||
| Strontín | |||||||||||||||||||||||||
| |||||||||||||||||||||||||
Vegna þess hversu hvarfgjarnt kalsín er finnst það ekki hreint í náttúrunni. Það er algengast í steinefnum eins og kalsíti, dólómíti og gifsi. Kalk, sem er eitt form kalksteins, er aðallega úr kalsíti. Kalsín er nauðsynlegt lífverum, sérstaklega í lífeðlisfræði frumna. Kalsín er uppistaðan í beinum og er því algengasti málmurinn í mörgum dýrum.
Einkenni
breytaNotkun
breyta- Sem afoxari við hreinsun annarra málma
- Sem hjálparefni við gerð málmblandna
- Sem bætiefni í ostagerð þar sem það hefur áhrif á virkni ostahleypis
- Kalsíumkarbónat (krít) er notað sem íblöndunarefni við sementsgerð
- Kalsíumarsenat er notað í skordýraeitur.
- Kalsíumklóríð er notað til að rykbinda og íshreinsa vegi.
- Kalsíumfosfíð er notað í flugelda.
